þriðjudagur, 29. desember 2015

Byrja á bókinni

Já þetta tókst mér en ekki mikið meira en það. Um þetta áramótaheit ætla ég ekki að hafa mörg orð það kemur seinna. Og ef ykkur dettur í hug að spyrja þá fáið þið engin svör.

Búa til heimagert pasta

Já þetta áramótaheit kláraði ég með glæsibrag held ég. Ég bjó til ravioli með sveppafyllingu og fékk uppskrift hjá Ragnari Ingvarssyni úr bók hans Læknirinn í elhúsinu - Veislan endalausa. Fékk lánaða pastavél hjá Stellu vinkonu minni og bauð svo Garðari og Jóhönnu Láru í mat. Við hjónin hjálpuðums að og útkoman var ja, góð á bragðið sem er fyrir mestu en frekar ljót. En þetta tókst og var bara gaman.

mánudagur, 5. janúar 2015

Áramótaheit

Ef guð lofar þá mun ég ná því að verða 50 ára þegar líða tekur á sumarið. Á þessum tímamótum er vert að líta um farinn veg og þakka fyrir að hafa náð þessum aldri. Af þessu tilefni þá hef ég sett mér 50 áramótarheit, eitt fyrir hvert ár sem ég hef lifað og mun leyfa ykkur að fylgjast með því hvernig gengur.